Næsta laugardag 28. mars verður haldin Jukai athöfn hjá Zen á Íslandi – Nátthaga að Kletthálsi 1, 2. hæð. Í Jukai athöfninni taka iðkendur lífsgildin sem grunngildi í lífi sínu, og þar með skýra afstöðu með lífinu sjálfu og gegn hverskyns ofbeldi og óréttlæti. Við munum einnig halda upp á afmæli Búdda þennan laugardag. En bæði Jukai athöfnin og afmæli Búdda benda á lífið í sinni tærustu mynd. Í von um að sjá ykkur sem flest, djúpt Gassho.
Við sitjum hugleiðslu frá kl. 8:00 og
byrjum Jukai athöfnina klukkan 9:30.

Hin miklu lífsgildi Búddha eru varðveitt af þeim sem hafa vaknað. Búddar miðla þeim til búdda; kennarar miðla þeim til kennara. Að taka á sig þessi lífsgildi fer út fyrir fortíð, nútíð og framtíð; vakningin heldur áfram stöðugt frá fornum tímum til dagsins í dag. Shakyamuni Búdda færði þessi lífsgildi til Mahākāśyapa, og Mahākāśyapa færði þau til Ānanda. Þannig hafa þau verið flutt frá kynslóð til kynslóðar. Þegar maður leitar hælis í Búdda, Dharma og Sangha, opnast leiðin til lífsgilda allra búddha. – Eihei Dōgen Zenji, Kyojukaimon
Færðu inn athugasemd