Svipur hins upprunalega – fyrirlestur 18. apríl

By

Næstkomandi laugardag 18. apríl 2026 mun Alfred Chozetsu flytja fyrirlesturinn „Svipur hins upprunalega“ að Kletthálsi 1, 2. hæð. Fyrirlesturinn er öllum opinn og hefst stundvíslega kl. 9:15.

​Í ræðunni er ljóð Dogens, Svipur hins upprunalega, haft að leiðarljósi og spurt hvað það segi okkur um veruleikann sem birtist áður en við festum hann í nöfn, hugmyndir og hluti. Þar er horft til þess að heimurinn sem við sjáum sé ekki allt sem er, að veruleikinn sé ekki fast form heldur virkni í sífelldu flæði, og að tíminn sé hluti af þeirri sömu hreyfingu fremur en eitthvað sem stendur utan við hana. Umræðan snertir því á öllu sem er: skynjun, efni, tóm, tíma, trú, daglegu lífi og því hvernig við lærum að vera til staðar í heimi sem er lifandi og óstöðvandi á sama tíma.

Við munum sitja hugleiðslu frá kl. 08.00 og svo hefst fyrirlesturinn kl. 9:15.

Í djúpu gassho vonumst við til að sjá ykkur öll.

Athugasemdir

Færðu inn athugasemd

NÝJUSTU FRÉTTIR

Fleiri fréttir [ -> ]