— BREYTT 17.5.2026 —
Sesshin hugleiðsludagar Nátthaga hefjast miðvikudag 20. maí og standa til og með laugardeginum 23. maí í aðsetri Zen á Íslandi – Nátthaga að Kletthálsi 1, 2. hæð. Við bregðum út af hefðinni í ár og höldum Borgarsesshin að vori, en í haust verður haldið heillrar viku Sveitasesshin.
Borgarsesshin er djúp og einbeitt Zen‑iðkun sem gerist mitt í borgarlífinu – leið til að „snerta hug‑hjartað“ án þess að setja allt lífið á pásu. Við byrjum á miðviku-dagskvöldi, komum svo saman á Kletthálsi á morgnana og kvöldin á fimmtudegi og föstudegi, en sinnum venjulegri vinnu og skyldum okkar yfir daginn; þannig lærum við að bera kyrrðina, einbeitinguna og formið inn í raunverulegt hversdagslíf.

Í sesshin æfum við okkur í þögn og athygli í öllum athöfnum, með skýru formi og hlýjum stuðningi Söngunnar. Á laugardeginum dýpkum við iðkunina enn frekar með heilum setudegi sem sameinar orkuna úr vikunni í eina heild. Þetta er frábært tækifæri fyrir alla, bæði fyrir byrjendur og þá sem vanir eru: að næra tengsl sín við Búdda, Sönguna og Darmað, fá ferskt sjónarhorn á streitu og hraða dagsins, og finna hvernig iðkunin getur orðið lifandi hluti af lífi okkar hér og nú.

Skráning fer fram á heimasíðu okkar hér: Borgarsesshin 2026 – Zen á Íslandi (þið getið líka smellt bara á hnappinn). Þátttökugjaldið er 10.000 kr. og bankakrafa verður stofnuð þegar skráning hefur farið fram.
Sem sagt, dagskráin hefst á miðvikudagskvöldið 20. maí kl. 19:30 með sitjandi hugleiðslu, inngangsorðum og leiðbeiningum til þátttakenda. Síðan tekur dagskráin við eins og hér segir. Athugið að Oryoki máltíð mun fara fram á laugardeginum. Þeir sem ekki eiga oryoki skálar eru beðnir um að tilgreina það við skráningu (sjá skráningaform).
Full dagskrá Borgarsesshins er hér fyrir neðan:
Miðvikudagurinn 20. maí
- 19.30 Zazen
- 19:45 Leiðbeinandi opnun
- 20.05 Kinhin
- 20.15 Zazen
- 20.50 Heitin fjögur
Fimmtudagurinn 21. maí & Föstudagurinn 22. maí
- 07:00 Zazen
- 07:35 Kinhin
- 07:45 Zazen
- 08:20 Kyrjun
Iðkun í dagsins önn - 19:30 Zazen
- 20:00 Kinhin
- 20:10 Zazen
- 20:40 Heitin fjögur
Laugardagurinn 23. maí
- 07:00 Zazen
- 07:35 Kinhin
- 07:45 Zazen
- 08:20 Kyrjun
- Oryoki & hlé
- 10:00 Samu / Vinnuiðkun
- 10:45 Morgunkaffi
- 11:15 Zazen
- 11:45 Kinhin
- 11:55 Ræða Zenki
- 12:30 Kyrjun
- Hádegisverður (óformlegur) & hlé
- 13:30 Zazen
- 14:00 Kinhin
- 14:10 Zazen
- 14:40 Heitin fjögur & kveðjuhringur
Færðu inn athugasemd